|
|
18.03.2007 22:25:56 / pallietta
Hæ!! í dag ætllaði ég að fara að
heimsækja vinonu mína Birgittu. Hún er 20 og ikkað, einstæð
móðir 2gja barna(Stelpa 3 ára og strákur 7 ára), svo á hún 4
hunda, er að passa einn kött og á 3 ketti en einn er týndur
En ég var bara ikkað búin að hlakka *GG* mikið til að fá að
fara í heimsókn til hennr(ég er nebblega mesta dýramanneskja
sem þú getur ýmindað þér og Birgitta líka.) En því miður, í
gærkvöldi var hún og vinur hennar að keyra(vinur hennar
keyrði á bílnum sínum og Birgitta var frammí við hliðiná
honum) Þau voru á svona 60 km hraða á þjóðveg uppí sveit eða
ikkerstaðar hjá skorradal(hún á nebblega heima þar) og allt í
einu sáu þau hesta á veginum og þau reyndu að bremsa en
KRASH!!!!!! Hesturinn hentist uppá þakið á bílnum og
framrúðan brotnaði yfir Birgittu og vin hennar, loftpúðinn
virkaði ekki og bíllinn eiginlega lagðist saman og þau bara
næstum því krömdust!!! Og Hestarnir 2 voru svo hræddir(annar
stórslasaður og hinn slasaður) Að þeir hlupu burt eða réttara
sagt var það mjög erfitt fyrir þá. ég veit ekki hvað gerðist
meir en Birgitta slasaðist ekki mjög alvarlega en hún getur
samt ekki hreyft sig. Hún var til kl 5 í nótt að taka
skýrslur og ikkað þvílíkt vesen. Lögreglan leitaði að
hrossunum oí alla nótt og þau fundust loksins seint í morgun
Hesturinn sem var minna slasaður lifir af. Lögggan taldi að
hinn mundi ekki lifa af en svo þegar hann fannst sáu þau að
hann var nefbrotinn, haltur(man ekki hvort hann var
fótbrotinn eða hvað ) og allr út í blóði og illa slasaður.
Þetta leit illa út en það þarf ekki að lóga honum(segir
löggan allavega). Nú er Birgitta bara uppí rúmi og börnin
hennar og dýrin fara bara í pössun svona yfir helgina og hún
getur varla hreyft sig(nottla í sjokki). Ógeðslega leiðnlegt
og við sem ætluðum að hafa svo gaman. Henni fannst þetta líka
ógeðslega leiðinlegt!!
Kv.
Hrefna
»
27.02.2007 16:05:57 / pallietta
OK. Orðið skiluru er komið mikið í
tísku en það var mjög frægt þegar stórsjarnan mikla,
Silvía Nótt eða Silvia Night, eins og hún vill láta
kalla sig núna, tók það í notkun. Já hún Silvía Nótt er
sniðug persóna og þeir sem fatta ekki grínið í sambandi við
þessa frábæru persónu sem Ágústa Eva
leikur(og er þar með að gera
grín að öllu sem fólk og sérstaklega ungt fólk það
er að segja unlingar og upp í þrítugt gerir, já kæru
landsmenn, þetta er það sem fólk er að gera dags daglega en
það bara fattar það kannski ekki) Þeir
sem eru ekki að fatta grínið hjá Silvíu Nótt eru einmitt
já frekar heimskir myndi ég segja eða þá að þeir fatta að hún
er að gera grín af þeim sjálfum. Ég meina; Ég bara trúi varla
að Evrópa, heimsálfan sem ég bý skuli vera með svona lítinn
húmor að fatta þetta grín ekki! Það var einn og einn sem
brosti þarna í salnum, já tökum þá til fyrirmyndar,
fólk ætti frekar bara að hlæja að þessu en ekki taka
þessu svona alvarlega. En ég vona að þið hafið eitthvað lært
af þessu en þeir sem eru ósammála mér meiga skrifa comment
hérna á þetta blogg takk.
Kv
HrefnaHlo
Ps. Verð ykkur að
góðu!!
»
27.02.2007 16:04:36 / pallietta
Uuuuuuuuhuuuuuuuuuhuuuuuuuuuhhhhuuuuhuhuhuhuhuhuhuhuuu!!!! Ég var veik í
byrjun febrúar og á afmælisdaginn minn, þann 6. Svo fór mér að
batna en hálsbólgan fór ekki. Síðan var hún í 3 daga og
fór svo. Ég var svo hálsbólgulaus í 3 daga. Svo kom hún
aftur. Og hún hafði mikil áhrif á eyrun þá og alltaf
þegar ég kyngdi kom þrýstingur á eyrun og smá illt í hálsinn.
Þá var hún væg. Þangað til hún versnaði einn daginn og þá
fannst mér vont að kyngja og borða. Næsta dag versnaði
hún meir og mér fannst vont að borða, kyngja og ræskja mig.
Var þannig í 2 daga. Svo vernaði hún enn meira og í gær
fannst mér vont að tala líka. Svo vorum við að horfa á
C.S.I. og mér fór að klæja í hálsinn. Mamma sagði að nú væri
þetta örugglega að batna. Í morgun vaknaði ég svo mjög
stífluð(það er nebblega líka búið að vera kvef og slím með
hálsbólgunni) að ég fann minna fyrir verkjunum í hálsinum. Þá
hélt ég að mér væri að batna. En svo þegar ég var í kominn í
skólann og loksins þá búin að losa sl+ímið úr hálsinum og
nefinu, þá koma verkurinn í hálsinn aftur!!!!! Ég er að fkn. drepast
núna og núna eru verkir þegar ég kyngi, borða, tala,
ræskji mig, hlæj, græt, eða rembist(sko ekki við að kúka hehe
). Meira að segka
líka núna án þessa að gera neitt!! Samt eru
verkir!!!!!! Svo að núna kl. 5 ætlar mamma
að fara með mig og láta taka sýni til að vita hvort ég sé með
streftakokka eða þða þurfi að taka kirtlana eða ikkað, fá
pecillín. Hlakka til þegar þetta lagast
Kv Hrefna
bestastastastastastastastaaaaaaaaa!!!! (veika)
»
16.12.2006 13:04:44 / pallietta
12. des. = Stekkjastaur:
Ullarsokkar.
13. des. = Giljagaur: Skæri með geggjað
flottu mynstri.
14. des. = Stúfur: Mentos(með
mintubragði).
15. des. = Þvörusleikir: Þykkir,
flís-puttavettlingar.
16. des. = Pottaskefill: Fullt af litlu
marsi, snickersi, bountyi, milky wayi og öðru svona súkkulaði
í poka.
17. des. = Askasleikir: Ekki kominn til
byggða.
»
04.08.2006 13:31:54 / pallietta
|
Skoðanakönnun, 14 manns kusu.
Uppáhaldsárstíð? |
|
Sumar |
| 71% |
| Vetur |
7% |
| Vor |
| 14% |
| Haust |
| 7% |
| Ekkert |
0% |
»
24.12.2005 17:09:58 / pallietta
Gleðileg jól elskurnar mínar og munið að skrifa í hina fögru
gestabók. (ina mína! ) LOVE YA!
Kv.Hrefna
»
08.07.2005 21:59:41 / pallietta
Hér
koma nokkur lög:
http://home.att.net/~mimisk8/futatabi.mid
http://home.att.net/~mimisk8/alwayswithme.mid
http://home.att.net/~mimisk8/dragonboy.mid
http://home.att.net/~mimimasu/flymetothemoon2.mid
Kv. Hrefna.
Ps. Ég er ekki búin að blogga lengi og hér kemur ástæðan: Við
af-teingdum okkur og fengum okkur nýja og betri tengingu í
staðinn!!! Og nú er hún komin...!
»
04.05.2005 20:28:50 / pallietta
Hæ, hæ!!! Í morgunn vaknaði ég,
klæddi mig, borðaði og allt það. Síðan hjólaði ég niðr´í skóla.
Efti skóla fór ég heim að skila töskunni. Karó kom með. Síðan
hjólaði ég í tónlistarskólann og Karó fór heim. Í dag var
tónfræði. Það er próf í næstu viku!!! Ég kann eiginlega ekkert.
Eftir tónfræði fór ég til Karó og hún tók hjólið sitt og við
hjóluðum heim til mín. Við fórum út í garð og létum Eyrnasnúlla
í búrið, sem pabbi smíðaði. Það er svo stórt, að það verður að
vera úti í garði. Við sóttum Fríð og leifðum henni að skoða
kanínuna. Fyrst varð hún hrædd við hana, þótt kanína sé sé
pínulítil og Fríð mikið srærri! Svo fór Fríð að hlaupa í
kringum búrið og reyna að ná kanínunni, þannig að við fórum með
Fríð burt frá henni. Mamma kom heim með kleinur og við gáfum
Fríð smá bita. Henni fannst það svo gott, að hún elti okkur út
um allt og horfði biðjandi á okkur. Allt í einu kom Skoppa og
hún fékk líka bita. Svo fór hún. Ég setti hengirúmið upp og við
Karólína skiptumst á að vera í því. Svo skiluðum við Fríð og
fórum saman í hengirúmið. Við sátum. Allt í einu datt Karó úr
því og fór að skellihlæja! Það var fyndið! Svo hringdi Ólafía,
stóra systir hennar Karólínu. Hún sagði að Karó ætti að leggja
af stað heim. Ég fylgdi Karó að næstum að skólanum. Svo fór ég
í hengirúmið með
Eyrnasnúlla(kanínunni) og heimtaði teppi af því að það var svo
kalt. Það endaði með því að við snúlli fórum inn. Hann fékk að
ver laus inni’ á baði, þótt hann væri búinn að ver laus þar í
alla nótt og allan dag, fyrir utan að hann var í kanínubúrinu.
Svo fór ég að
borða. Það voru kjötbollur, alfeg eins og í mötuneitinu, í
skólanum. Ég fékk mér eina bollu svo leifði mamma mér að fá
annað, að því að ég fékk svona í hádeginu. Ég fékk mér ristað
brauð, með smjöri og osti. Síðan fór ég í tölvuvna og skrifaði
þetta. Bæ, bæ, kv. Hrefna!
Ps. Er ekki enn búinn að láta jaxlinn
undir koddann minn!!!
»
29.04.2005 23:07:23 / pallietta
Halló og hæbb! Í
frjálsum tíma skrifaði ég lýsingarorðasögu. Hún virkar
þannig, að maður skrifar sögu og setur auða línu, þar sem lýsingarorðin eiga að vera. Svo
biður maður einhvern, eða einhverja, að seigja sér lýsingar
orð. Svo skrifar maður þau í auðu
línurnar. Ég hef breitt letur þar sem
lýsingarorðin eru. Lýsingarorð eru t.d.: krumpaður, hringlóttur,
brosandi, skjálfandi, bleikur o.fl. Hér
kemur sagan:
Einu sinni voru þrjú hrukkótt systkin. Þau hétu Ari, Jónína og Sigurður. Þau
voru að fara í beyglaða lautarferð. Þau
smurðu hvítt nesti og lögðu svo af stað.
Eftir krumpaða göngu settust þau niður
í feita grasið og borðuðu
bláa nestið sitt. Þegar þau voru búin
að borða nægju sína, löbbuðu þau framhjá mjóa fjallinu. Allt í einu heyrðu þau bleikt hljóð, í fjarska. Þau reyndu að heyra
hvaðan þetta græna hljóð kæmi. Þau
gengu meðfram köflótta stígnum og komu
að mosóttri girðingu. Bak við hana var
skjálfandi grifja. On´í henni var
hringlótt lamb. Lambið var með
hlussulegt sár á enninu. Ari
kúkótti hljóp til að sækja doppóttu kerruna hannar Jónínu jákvæðu. Þegar hann kom með heitu kerruna, setti hann kalda lambið on´í litlu
kerruna. Svo keirðu þau flotta lambið
heim til sín. Þegar þau voru komin heim, hjálpuðu hoppandi foreldrar þeirra, þeim að hjúkra
hreina lambinu. Eftir krúttlega hjúkrun á röndótta
lambinu, slepptu þau því út í þurra
hagan. Þessi brosandi saga endar bara
hlæjandi!!!
Köttur úti í mýri
setti upp á sér stýri,
úti
er ævintýri!!!

»
27.04.2005 21:18:35 / pallietta
...skrifa ég loksins í dagbókina Ég vaknaði, burstaði,
borðaði, klæddi mig og allt það. Síðan hjólaði ég i skólann.
Eftir skóla fór ég í tónfræði. Þegar tónfræðin var búinn, fór ég
til Karólínu. Við spiluðum spil, sem ég man ekki hvað heitir.
Eftir dágóða stund, heima hjá Karólínu, fórum við heim til mín. Við
hjáluðum svoldið og síðan fórum við inn, í tölvuna. Við fórum
inn´á www.b2.is ok svo í: "leikur".
Þar völdum við leiki og skiptumst á. Þegar klukkan var orðinn 6:30,
þurfti Karólína að fara heim. Ég fór aðeins út og svo heim, að
borða. Eftir matinn hringdi ég í Karó og spurði hana hvort ég mætti
koma aftur, en hún var að fara að hjálpa pabba sínum við eitthvað,
og gat ekki leikið. Þá fór ég bara út með systur minni, henni
Þórdísi. Við tókum Fríð með. Þegar við vorum búinn að vera dáldið
leingi úti fórum við að hjóla. Við ætluðum að hjóla heim til Fríðar
og skila henni. En... ......Fríð þurfti endilega að sjá
hrafna(krumma) og hlaupa á eftir þeim. Ég kallaði á hana, en hún
hlýddi ekki!!! Ég bað þórdísi að bíða og hljóp á eftir Fríð. Ég
átti fullt í fangi með að leita að Fríð, og hjálpa Þórdísi. Þórdís
fór að gráta og ég hjálpaði henni með hjólið heim. Síðan fór ég til
pabba og bað hann að hjálpa mér við að leita. Þórdís klagaði í
ömmu. ,, Hrefna skildi mig eina eftir!!!'' grenjaði hún. Ég var
ekki ágnægð með þetta!!! Við fórum heim til Fríðar og Helgi,
eigandi hennar, kom út og spurðu hvort Fríð hefði nokkuð sloppið.
Við játuðum. Hann fór að hlæja og Vala, konan hans, kom út. Þau
sögðu að Fríð væri kominn heim. Allt í einu kom Fríð,
óþekktarormurinn, út. Við kvöddum þau og fórum heim. Síðan skrifaði
ég þetta, bæ. Joke(djók)!!! Bless, bless, kv. Hrefna!!! Ekki
gleyma að KVITTA!!!
»
26.04.2005 14:11:38 / pallietta
Eg er buinn að taka mer pasu i blogginu! Eg er i skolanum og eg get ekki gert kommustafi. Það er alfeg omurlegt. Eg verð að fara, timinn er að verða buinn! Bæ, bæ, kv. Hrefna! Ekki gleyma að skrifa i gestabokina!!!
»
19.04.2005 20:22:54 / pallietta
Hæ, hæ!!! Í gær fór ég í próf, í sundi, í skólanum. Við tókum
próf í bringu-baksundi, bringusundi, skriðsundi, bak- skriðsundi
og að singa okkur. Mér fannst mér ganga bara vel! Ég vaknaði
í morgunn, klæddi mig og allt það. Síðan hjólaði ég í
skólan. Í sólanum var Karólínu svo illt í maganum, að hún þurfti að
fara heim! Ég fékk að fylgja henni!!! Eftir skóla hjólaði ég
heim, og fór svo í tónlistarskólann. Eftir tónlitarskólann,
fór ég í strætó til ömmu. Ég ætlaði að vera í dýrabúðinni, en
Birgitta var ekki þar. Ég fór bara með ömmu að sækja
Þórdísi(systur mína) og svo í Garðheima, að kaupa gjöf, fyrir stóru
systur henna Karólínu. Hún varð 16 ára í dag!!! Ég keypti
skjaldböku-styttu handa henni. Síðan fór ég til Karólínu.
Ólafía(systir Karólínu) var bara ánægð, með gjöfina Það var nú
gott! Ég, Karó og Sunneva fórum að leika okkur. Svo koma matur.
Eftir matinn fórum við aftur út. Svo fórum við að leika líka
við Elínu(stelpuna í götunni). Þegar við vorum búinn að
leika okkur, (svolítið lengi) var klukkan orðin hálf- átta og ég
fór heim. Ég spurði eftir Fríð, en hún var ekki heima. Þegar ég
koma heim, var Þórdís úti að kríta. Ég fór inn, settist við tölvuna
og skrifaði þetta. Kv. Hrefna.
P.S. Ég er að fara að nudda mömmu og amma verður sextíu ára á
morgun       
»
17.04.2005 12:46:41 / pallietta
»
15.04.2005 22:43:23 / pallietta
Hæ, hæ!!! Það er
kominn fötudagur!!! Ég elska föstudaga, eftir
klukkan..........svona....í kringum sjö leitið! Mamma og
pabbi eru á hátíð í alþingishúsinu. Pabbi vinnur fyir
alþingi. Mamma og Birna, vinkona hennar, ætla að sýna
magadans show, því mamma og Birna eru að æfa. Ég hafði
sko nóg að gera í dag Éh vaknaði í morgunn, borðaði og
allt það. Svo hjólaði ég í skólann. Það var gaman í
skólanum. Allavega...ég gat að minnsta kosti verið
þar. Stundum verð ég svolítið pirruð, þegar ég kem heim,
því allir, eða flestir strákarnir eru að pirra mig.
Jæja! Lífið geingur sinn vanagang. Jú, jú auðvita var gaman
í dag! Eftir skóla fór ég í skólasund. Ég og Sunneva vour
samferða. Kanski næstum alla leiðina, því ég var á hjóli, og
hún bara gangandi svo að ég fór mikið hraðar en hún.
Efti sundi hjólaði ég í tónlistarskólann. Eftir
tónskólann fór ég til Sunnevu. Elín, vinkona hennar var hjá
henni. Fyrst lékum við okkur við kisuna hennar. Síðan horfðum
við á mynd. Hún var nú samt eiginlega bönnuð innan 16
eða 18 ára. Allt í einu var klukkan orðin margt!
Við Sunneva þurftum að fara að drýfa okkur á
töfranámseiðið í Hólmaselinu. Við slökktum á myndinni, og
Elín fór heim. Ég Sunneva og Ólafur, eldri bróðir
hennar Sunnevu, fórum af stað í hið mikla töfranámskeið!!!
Við bjuggum til þrjá bolta og lærðum að henda þeim í
átta, svona eins og trúðar gera. Maður tekur bara blöru,
lætur hrísgrjón í hana og bindur fyrir. Svo klippir maður
eins nálægt hnútinum og maður þorir, án þess að það komi
gat á boltann. Síðann tekur maður aðra blöðru og klippir
stútinn af henni, og treður hinni blörðunni, með grjónunum
ofaní hana. Síðan bindur maður hnút og klippi líka eins
nálægt og hægt er, án þessað blaðran springji. Þá er kominn
bolti! Það lærðu allir með einum bolta, og flestir með
tveimur boltum. Engin nemendanna lærðu með þremur boltum.
Pabbi kom, þegar ég var að búa tiæ bolta og sagði mér að hann
og mamma væru nú að fara á hátíðina. Ég kvaddi pabba og
bað hann að skila hveðju til mömmu og óska henni góðs
gengis að dansa. Efti námskeiði fó ég heim til
Sunnevu, sótti dótið mitt og hjólaði heim. Pabbi hafði tekið
skólatöskuna og sundpokann fyrir mig. Kristín var að passa
okkur. Amma var bara niðri. Hún fékk frí í að passa okkur
Við borðuðum pizzur og feingum okkur kók og sólberja saft,
blandað með vatni. Kristín(frænka mín) fékk sér bara kók.
Þórdís(systir mín) fékk sér sólberjasaft, blandað vatni og
Hrefna(ég sjálf) fékk mér sólberjasaft blandað vatni blandað
við kók!!! Amma vildi bara borða niðri, hjá sér. Ég veit
ekkert hvað hún fékk sér. Alfeg síðast horfðum við á
Disney-myndina. Hún var um spýtustrákinn, Gosa! Þetta var
leikinn mynd ofboðslega skemmtileg! Svo held ég að ég hafi
bara sest niður, fyrir framan tölvuna og... ...skrifað
þetta!!! Bless, bless, kv. Hrefna! Munið efti
gestabókinni!!!
»
14.04.2005 21:11:18 / pallietta
HÆ, HÆ!!! Ég vaknaði í morgun, klæddi mig og allt það. Ég
hjólaði í skólann. Eftir skóla fór ég í sund. Það verður próf á
mánudaginn, þannig að við urðum að vanda okkur vel. Við æfum okkur
ekki á föstudögum, því þá er leiktimi. Það gera það náttúru lega
sumir, en margir vilja líka nóta leiktímans. Eftir sundið, þegar ég
og Karólína vorum að taka lásinn af hjólunum okkar, kom Davíð, með
hlaupahjólið sitt og hótaði að slá því í hjólið hennar Heklu!
Hann þóttist bara ætla að slá, en svo sló hann í það Hann sló
aftur og aftur og Hekla gerði ekkert! Hekla gæti alfeg rekið hann
í burtu, því hún er miklu sterkari enn hann. Hjólið hennar Heklu
dúndraðist í hjólið mitt! Ég að hann um að hætta, en ann gerði það
ekki! Loksins hætti hann þó. Ég, Karó og Hekla hjóluðum af stað.
Eftir smá stund losnaði keðjan hjá Heklu, en hún setti hana
einhvern veginn á aftur. Ég og Karó fórum heim. Við fengum okkur að
borða og spiluðum kleppara. Karólína vann. Það var líka allt í
lagi. Ég vinn líka stundum. Svo fórum við út að verpa eggjum og svo
í asna = boltaleikir. Þar næst fórum ið að klifra í stóru öspunum,
sem eru þarna rétt hjá húsin hennar Karólínu. Síðan fórum viðí
hollí hú. Allt í einu kallaði mamma hennar Karólínu á hana og sagði
henni að hún ætti að gera svona mynd, á glas. Ég fékk lika að gera
en ég gerði bara á glæru og tek hana svo af þegar hún er hörnuð.
Þar næst fórum við í snú-snú. Þá var klukkan orðin svo margt að ég
þurfti að fara heim. Karólína fylgdi mér hálfa leið, en svo snérum
við til baka af því að ég gleymdi vettlingunum mínum heima hjá
henni. Þegar við vorum búinn að sækja þá hjólaði ég heim. Á
leiðinni hitti ég Fríð. Hún var að fara í hundaskólann, með
eigendum sínum. Hún vildi samt koma með mér í labbitúr. Jæja. Hún
lærir í hundaskólanum í kvöld að vera kyrr. Þegar ég
kom heim fékk ég mér að borða. Það var kjúkklingur í matinn. Ég
ákvað að eiga lendóið, sem ég gerði í smiði, bara sjálf. Það var
skrín, eða kista því að hún var eiginlega of stór, til að vera
kallað skrín. Ég raðaði hlutum í hana, og horfði á póstinn Pál.
Systir mín, hún Þórdís var nefninlega að horfa á hann inni hjá mér.
Síðan horfðum ég og mamma á grínmynd, á skjá einum. Ég man ekki
hvað hún heitir. Hún er um strák, sem er ofboðslega klár. Svo fór
ég niður til ömmu og skrifaði þetta. Áðan þegr ég var
svona...hálfnuð, slökknaði á tölvunni en pabbi náði einhvern
veiginn að láta bloggið sem ég skrifaði áðan, inn´á aftur. Bless,
bless í bili!!!!! Kv. Hrefna. Ekki gleima að skrifa í
gestabókina.
»
Síður: 1 2
|
|