Hæ, hæ!!! Í morgunn vaknaði ég,
klæddi mig, borðaði og allt það. Síðan hjólaði ég niðr´í skóla.
Efti skóla fór ég heim að skila töskunni. Karó kom með. Síðan
hjólaði ég í tónlistarskólann og Karó fór heim. Í dag var
tónfræði. Það er próf í næstu viku!!!
Ég kann eiginlega ekkert.
Eftir tónfræði fór ég til Karó og hún tók hjólið sitt og við
hjóluðum heim til mín. Við fórum út í garð og létum Eyrnasnúlla
í búrið, sem pabbi smíðaði. Það er svo stórt, að það verður að
vera úti í garði. Við sóttum Fríð og leifðum henni að skoða
kanínuna. Fyrst varð hún hrædd við hana, þótt kanína sé sé
pínulítil og Fríð mikið srærri!
Svo fór Fríð að hlaupa í
kringum búrið og reyna að ná kanínunni, þannig að við fórum með
Fríð burt frá henni. Mamma kom heim með kleinur og við gáfum
Fríð smá bita. Henni fannst það svo gott, að hún elti okkur út
um allt og horfði biðjandi á okkur. Allt í einu kom Skoppa og
hún fékk líka bita. Svo fór hún. Ég setti hengirúmið upp og við
Karólína skiptumst á að vera í því. Svo skiluðum við Fríð og
fórum saman í hengirúmið. Við sátum. Allt í einu datt Karó úr
því og fór að skellihlæja! Það var fyndið!
Svo hringdi Ólafía,
stóra systir hennar Karólínu. Hún sagði að Karó ætti að leggja
af stað heim. Ég fylgdi Karó að næstum að skólanum.
Svo fór ég
í hengirúmið með
Eyrnasnúlla(kanínunni) og heimtaði teppi af því að það var svo
kalt. Það endaði með því að við snúlli fórum inn. Hann fékk að
ver laus inni’ á baði, þótt hann væri búinn að ver laus þar í
alla nótt og allan dag, fyrir utan að hann var í kanínubúrinu.
Svo fór ég að
borða. Það voru kjötbollur, alfeg eins og í mötuneitinu, í
skólanum. Ég fékk mér eina bollu svo leifði mamma mér að fá
annað, að því að ég fékk svona í hádeginu. Ég fékk mér ristað
brauð, með smjöri og osti. Síðan fór ég í tölvuvna og skrifaði
þetta. Bæ, bæ, kv. Hrefna!
Ps. Er ekki enn búinn að láta jaxlinn
undir koddann minn!!!